bloggsvæðið MITT
Ef að þú hefur EKKERT að gera (;
09.07.2007 19:23:16 / Gulla

blogg júní og júlí mánaðarins

æjj, já ég er ekki gott efni í moggabloggara. Efast um að nokkur myndi vilja borga mér fyrir að fá að auglýsa hér til hliðar. Ég má nú eiga það að í dag voru 5 heimsóknir, ansi gott það!! :haha:

Ég las smá pælingu í dag (ég er nú ekki vön að stela efni af síðum en þetta er snilld og svo satt!! ;)) Þessi pæling hljómaði einhvernvegin svona :

Grilltímabilið í hámarki. Allir að grilla. Húsmæður gleðjast yfir því að þurfa ekki að standa yfir pottunum, því bóndinn sér um grillið. VEI!

Þannig gengur þetta fyrir sig:
Frúin verslar í matinn.
Frúin býr til salat, græjar grænmeti sem á að grilla, og býr til sósu.
Frúin undirbýr kjötið. Finnur til réttu kryddin, setur kjötið á bakka ásamt grilláhöldum.
Bóndinn situr við grillið, með bjór í annarri.

Lykilatriði:
Bóndinn setur kjötið á grillið!
Frúin fer inn, finnur til diska og hnífapör.
Frúin fer út, og segir bóndanum að kjötið sé að brenna.
Bóndinn þakkar henni fyrir, og biður hana um að koma með annan bjór á meðan hann tæklar ástandið.


Annað lykilatriði:
Bóndinn tekur kjötið af grillinu, og réttir frúnni.
Frúin leggur á borð. Diskar, hnífapör, sósur, salöt og annað meðlæti, raðar á borðið.
Eftir matinn gengur frúin frá öllu.

Mikilvægast af öllu:
Allir þakka BÓNDANUM fyrir matinn, og hversu vel HONUM tókst upp.
Bóndinn spyr frúna hvernig henni hafi líkað "frídagurinn"...
og eftir að hafa séð svipinn á henni, ákveður hann að það er ómögulegt að gera
konum til geðs. Hmm (:

Annars er allt gott að frétta. Ég og litla heimasætan erum komnar í sumarfrí og erum að dunda okkur hér heima með litla herramanninum. Einmitt þegar sem mest er að gera hjá Birni, en það verður bara að hafa það. Ég ætla mér nú samt að toga hann í smá frí þegar líður á júlí.

Veðrið er frábært, yfir 20 stig núna annan daginn í röð, algjör snilld! núna kl 19:30 er hitin 20 og SÓL. gerist ekki betra. Börnin eru þó ekki eins kát með þennan hita eins og ég..... greyin alltaf svo heitt. Þá er bara að drekka nóg og kæla sig niður! jæja, Inga Sól er að fara í kalda surtu núna..............!

hætt þessu rausi....... Gulla


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.03.2007 09:22:55 / Gulla

Blogg mánaðarins

Í fréttum er þetta helst...... (:

Stórfjölskyldan er nýkomin heim frá Danmörk. Þótt að mörgum hafi þótt tímasetningin vera skrítin (óeirðirnar í sambandi við ungdómshúsið stóðu jú hæst á sama tíma og við vorum úti) þá áttum við engan þátt í þessu, bara koma því á hreint! 

Við skötuhjúin erum búin að vera í "stífu" aðhaldi frá áramótum vorum að reyna að sannfæra "dönsku" gestgjafa okkar um það að við borðuðum bara banana og skyr.... ég held að ég geti lofað ykkur því að við höfum ekki sukkað svona mikið í maaaaargar vikur. Rósa og Sveinn trúðu því tæpast að við værum í "prógrammi" og Björn greyið væri í bumbuCamp en ekki í boot camp. Ég fékk mér bara bjór og rauðvín og hvítvín og nammi og gúmmelaði og hreyfingin þessa vikuna var 1 klst göngutúr......bara fokkit! Enda steig nálin á viktinni þessa vikuna.

Nóg var sukkað og nóg var VERSLAÐ! Maður fer ekki til Danmerkur án þess að fylla allar ferðatöskur af fötum úr HM. Íslendingar! HM sjúkir, enda er það í lagi miðað við verðlag á barnafötum þar og hér. Við fórum með 38,6 KG út (ca helmingur af vikt var frosinn fiskur og nammi til íslendingana). Á heimleið var viktin 41,8 KG þannig að við náðum að versla vel uppí fiskinn og nammið.

Inga Sól var og ER flugvélasjúk eftir utanlandsferðina. Talar ekki um annað en stórar flugvélar og jújú dýragarðinn.  Við fórum ss í dýragarðinn í Óðinsvéum. Þar voru ljón (uppáhaldið hennar Ingu Sól), þar voru mörgæsir (ferlega krúttlegar og feitar keisaramörgæsir), gíraffar (sjitt hvað þeir eru stórir!), krókodílar, skjaldbökur, tígrisdýr og bara you name it. Ég stefni að því að setja inn myndir á heimasíðu krakkanna.

Dagbjartur Máni er með eindæmum rólyndispiltur. Hann kom með okkur Rósu að versla og við erum að tala um það að hann sat í bílstólnum (sem er að verða of lítill by the way) nánast allan tímann (4 klst+). Við þurftum ekki nema að kíkja á hann í stólnum þá skælbrosti hann. Algjört yndi. Við erum búin að fjárfesta í nýjum stól handa honum enda pilturinn orðinn rúm 8,5kg og rúmir 71cm. Stærðarpiltur. Sundið gengur alveg rosaega vel. Eigum bara 1 sundtíma eftir og hann er orðinn svakalega duglegur að synda og kafa og busla. Finnst þetta greinilega æði!!

Jæja, nóg komið í bili. Ætla að reyna að taka smá blogg skorpu núna. Verið dugleg að reka mig áfram!!!

Knús og kram Gullla


» 8 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 11:02:50 / Gulla

Blogga eður ei?

Palli var einn í heiminum..............

 

 

 

 

............Og þá var bankað?


» 4 hafa sagt sína skoðun

02.10.2006 15:29:53 / Gulla

Dagbjartur Máni...

...heitir ungi maðurinn!

Dagbjartur í höfuðið pápsa mínum (auðvitað) og Máni því þá eigum við Sól og Mána (:

plús það að hann fæddist um hánótt (:

Skírnin var mjög fín nema að mamman var ansi þreytt og mjólkurbúskapurinn varð ansi lítill eftir helgina. erum að vinna í að koma öllu á fullt sving aftur (: slappa af og drekka heitt.

jæja, farin að hvíla mig með stutta!

GMD og DMB


» 7 hafa sagt sína skoðun

29.09.2006 15:46:24 / Gulla

skírn á morgun

Nei Rósa, ekki búið að nefna en það verður skírt á morgun (: Litli maðurinn virðist ekki að vera ungabarn lengi því að hann er orðinn 5.7 kg! Hann er búinn að þyngjast um KÍLÓ síðan hann fæddist og það BARA á brjóstamjólk. Mér finnst þetta náttúrulega stórmerkilegt því að ekki þrífðist Inga Sól á mömmumjólk einni saman. Það er var viktað í síðustu viku (3 vikna) og þá var hann 5.3 kg (bætti á sig 400gr frá vikunni þar á undan) og núna voru önnur 400gr komin á hann og er hann s.s núna 4 vikna og 2 daga 5.7 kg En já skírn á morgun og OMG í tilefni dagsins keypti ég mér rauð-rósóttan/blóma lærasíðan KJÓL (yfir buxur að vísu en kjól engu að síður) og skó (og allir halda sér fast) með HÆL (alveg 2cm hugsa ég!!) Ég er búin að vera að æfa mig á skónum svo að ég detti ekki með drenginn á morgun á meðan ég held á honum (: Hef samband seinna (gæti orðið einhver tími þar sem tölvan er í hassi og að deyja drottni sínum hægt og bítandi með hverjum deginum sem líður. T.d núna kemur einkennilegt píp í hvert sinn sem ég ýti á takka á lyklaborðinu....hmm það var ekki fyrir 10 mínútum.) Gulla

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.09.2006 15:23:41 / Gulla

Og tíminn líður.......

......guttinn orðin 16 daga gamall. Ótrúlegt! Bráðum fer maður að sækja um fyrir hann á leikskóla hehe! Það gengur allt annars alveg ljómandi vel. Hann þyngist vel BARA á mömmu mjólk sem eru mikil viðbrigði miðað við stóru systur! Hann er orðin núna 4900 gr og var hjúkkan ánægð með það. Við erum farinn að kíkja út í labbítúra sem er algjör snilld.....ahhh ferskt loft eftir 2 vikna "inniveru" Það er ennþá verið að "rökræða" um nafnið og guð má vita hvenar pilturinn verður skírður... ....ætli við skírum og fermum bara ekki á sama tíma /: neee segi svona.... (): well....hafið þið það gott................... Gulla og stráksi

» 2 hafa sagt sína skoðun

29.08.2006 11:29:44 / Gulla

Nýr fjölskyldumeðlimur!

Jamm, loksins lét hann sjá sig. (: Eftir 11 "auka" daga í bumbuni.
Þetta tók fljótt og vel af allt saman og það er sko óhætt að segja það að engar 2 fæðingar eru eins.
Ég fór í mónitor á hádegi 26. ágúst. Lét ljósuna hreyfa við belgnum um kl 1 og fór svo heim að sofa. Vaknaði 2 tímum seinna og ENGIR verkir /:
Kl 18 fann ég fyrir reglulegum verkum sem duttu ekki niður....jibbí og það varð strax mjög stutt á milli og hver hríð í alveg 30 sekúndur (sem mér fannst þá vera heil eilífð) Kl 22 hringdi ég uppá deild því að mér fannst vera svo stutt á milli eða 2-3 mínútur. Ljósan sagði mér að bíða þar til hver hríð væri 1 mínúta....OMG EIN MÍNÚTA!! ohhhhh alltí lagi þá! (: ég bjóst við að koma inn á deild um morgunin. Kl 02 fékk ég 1 svaka hríð sem var í um 1 og hálfa mínútu og þá bara nei, nú hringi ég og ég "laug" því að nú væri hver hríð 1 mínúta (samt var það bara þessi eina hríð...(:..) Þegar ég kom uppá deild kl 02:20 var ég með 6-7 í útvíkkun og allt að gerast. Var í mónitor í ca 30 míns og fljótlega eftir það fékk ég 2 nálar í bakið. Um kl 03:30 missi ég vatnið í einni STÓRRI (undirstrikað og CAPS LOCK í fæðingarskýrslunni minni HAHA) gusu ofan á lappirnar á Birni (: hehe. Það flæddi bókstaflega útum allt alveg tært legvatn (eftir 11 auka daga!). Korteri eftir það klifraði ég uppí rúm á 4 fætur (æskileg stelling fyrir þungburafæðingar) og sem betur fer fannst mér mjög góð stelling. Fyrsti rembingur kom um 03:45 og drengurinn er fæddur kl 04:07. Þannig að eins gott að ég hringdi þarna kl 02 því að við vorum ekki í 2 klst inni á fæðingastofu þegar drengurinn er fæddur. Við fengum að vera inni í stofunni alveg til kl 06 að slappa af og kynnast litla gaurnum. Svo byrju "veðmálin". Hvað ætli hann sé þungur? Ég sagði 4160 Björn 4260 og ljósan 4450. Jedúdda mía, við misstum öll kjálkann á gólfið þegar viktin sagði 4770 gr. 55 cm langur og höfuðummál 38.5cm. Ég eldspræk og ekki eitt einasta saumspor tekið í mig.
Fylgjan fæddist um 20 mín eftir, óvengjustór (um 600-700gr) og ekki ekki byrjuð að kalka neitt. Það má því segja að allt hafi verið óvenjustórt við þessa fæðingu (:

Ég sagði svo við ljósuna mína að ég ætlaði mér ekki að standa í þessu yfir nótt þar sem ég er svo kvöldsvæf. Síðasta skiptið sem ég vakti yfir heila nótt ( já eða heilan sólarhring næstum) var á Þjóðhátið árið 2000 HAHA

jæja, þakka þeim sem lásu.......

Gulla og 2 daga gamall prins


» 4 hafa sagt sína skoðun

25.08.2006 20:37:22 / Gulla

41v+2d

ogggg enn ólétt 8|

Ég fór í mónitor í gær sem kom mjög vel út. Það komu meira að segja nokkrir sterkir samdrættir sem ég fann vel fyrir en voru ekkert óbærilegir. Ég var skoðuð og var með tæpa 2 í útvíkkun (ekkert að marka það segja ljósurnar því að það er ekkert óalgengt miðað við fjölbyrju...kannski er ég búin að vera með 2 í nokkrar vikur þessvegna :S) Hún hreyfði við belgnum hjá mér og ég var með mikla belglosunarverki í nokkra klukkutíma eftir en svo hættu þeir. Svo um kvöldið byrjaði það aftur en hætti svo um miðnætti og byrjuðu aftur í morgun og svo aftur í kvöld. Það virðist eins og ég sé að hrökkva öðru hverju í gang en svo stoppar allt :whut:

Allavega á ég annan mónitor tíma í fyrramálið og þá verður staðan tekin á mér og ákveðið í framhald af því hvað verður gert við mig. Mér er eiginlega orðið sama þótt að ég missi vatnið í Bónus á rush hour :$ :lol:

Fleiri fréttir seinna.....Gullan 1.30 í þvermál


» 4 hafa sagt sína skoðun

23.08.2006 08:40:40 / Gulla

41v

I'm still hereeeeee /:

Vaknaði að vísu í nótt og vakti í rúma 2 klst. Var með verki og gat ekki sofið. En núna ekkert að gerast. Ég mun sem sagt að öllum líkindum mæta í þennan mónitor tíma á morgun. Ég sem ætlaði sko ekki að mæta heldur vera búin að eiga. LOL

wellwelll...best að fara að leggja mig *geiisp*

Gullan 41v (*dæs*)


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.08.2006 14:37:23 / Gulla

40v+5d

JÁ ÞIÐ LÁSUÐ RÉTT. Komin FIMM daga framyfir arrrrg! og voða lítið að gerast fyrir utan kvef og hálsbólgu. Kemur fyrir að ég finn smá seiðing og fæ svona "túrverkja fíling með ógleðis ívafi" einstaka sinnum og þá sérstaklega á kvöldin og morgnanna. Já, svona er þetta. Ætli "krílið mitt" verði ekki 5 kíló þegar það loks skilar sér í heiminn. :lol:

Gulla "að eilífu ólétta"


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.08.2006 15:50:37 / Gulla

39v+5d

og barnið hefur það ljómandi gott. Ég væri alveg til í að það myndi láta sjá sig, litla krúttið. Ég sé að það eru flestir sammála mér í kynjamálum en ég held að þetta sé annað stelpuskott! Endilega kommentið fyrir neðan hverjir halda hvort það sé (:

Það lítur allt út fyrir að Inga Sól verði hætt með bleiu á daginn áður en hún verður stóra systir. Hún var allavega bleiulaus alla helgina og ekkert slys í brók. Kom einn og einn "dropi" í naríurnar en þá hrópaði hún "PISSSSSSA" og var greinilega mikið að halda í sér. Svo eru auðvitað mjög miklar líkur á að það komi bakslag þegar nýja barnið kemur (:

untill later, Gullan ólétta


» 3 hafa sagt sína skoðun

01.08.2006 10:05:30 / Gulla

ÉG mótmæli harðlega

Hvað er að gerast með þessa hitabylgju sem Siggi stormur spáði yfir verslunarmannahelgina? Mígandi rigning og 12-15 stiga hiti er EKKI hitabylgja. frá fimmtudag og til sunnudags (allavega eins og spáin er á www.mbl.is í dag). Þetta er löngu hætt að vera fyndið....... Plús það að ég svaf asnalega í nótt og var alltaf að vakna og núna vagga ég um eins og nírætt gamalmenni....með körfubolta í klofinu. Ekki þægilegt. Verð að fara í sund til að lappa upp á skrokkinn..... Þetta kvart var í boði......Gullu 38v

» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 19:58:24 / Gulla

Stolinn snilldarlisti...hmm mikið til í þessu

Þú veist að það er 2006 ef...

1. Þú ferð í Party og byrjar að taka myndir fyrir bloggið þitt.

2. Þú hefur ekki spilað kapal með alvöru spilastokk í nokkur ár.

3. Ástæðan fyrir því að þú ert ekki í sambandi við suma vini þína er að
því þeir eru ekki að blogga, ekki á MySpace og eða á MinnSirkus .

4. Þú leitar frekar um alla íbúð af fjarstýringunni í stað þess að ýta
bara á takkann á sjónvarpinu.

6. Kvöldstundir þínar snúast um að setjast niður fyrir framan tölvuna.

7. Þú lest þennan lista kinkandi kolli og brosandi.

8. Þú hugsar um hvað það er mikil vitleysa að lesa þennan lista.

9. Þú ert of upptekin/nn að taka eftir númer fimm.

10. Þú virkilega skrollaðir tilbaka til að athuga hvort þar væri númer
fimm.

11. Svo hlærðu af heimsku þinni.

12. Sendu þetta á vini þina, settu þetta á bloggið þitt eða komdu þessu á
framfæri einhverstaðar EF þú féllst fyrir þessu ...... (þú hugsar..."iss ég féll EKKI fyrir þessu" ) Aha ekkert svona fyrst að þú féllst fyrir þessu.



» 2 hafa sagt sína skoðun

18.07.2006 19:54:47 / Gulla

þabbarasvona

Vill ENGINN virkilega kommenta á könnunina mína?? (: hmmm

annars þá held ég að það sé best að drífa sig í bólið til að geta horft á Supernova í nótt. HRÆÐILEGT að þurfa að fylgjast með þessu....þetta eyðileggur afgangin af vikunni því ég er alltaf geispandi eftir að vaka eftir þáttunum argg ():

Og já síðasta innlegg var að sjálfsögðu STOLIÐ (hélt að ég hefði tekið þar fram í fyrirsögn..en hey..) ég er ekki svona klár að gera rumpað af ferlega fyndnum texta og hvað þá um rútubílstjóra..... (:

Annars...hjá Erla mín bumban verður að barni eftir 4 vikur..... (: tíminn flýgur

Gulla bumba......16. ágúst er dagurinn!


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.07.2006 16:17:00 / Gulla

Föstudagur og rigning...nema hvað

Hvernig gera skal hópferða- og strætó akstur skemmtilegri:

  1. Vertu klæddur eins og Gandalf úr L.O.T.R. undir stýri. Þegar að einhver vill komast inn, settu þá stafinn í gólfið og segðu með eins djúpri röddu og þú getur: “None shall Pass!”
  2. Þegar að þú kemur að fjölförnum gatnamótum skaltu öskra eins hátt og þú getur: “Ég vík ei fyrir neinum!” og gefa í. Ef að einhver spyr, segðu þá að þú sért Gunnar á Hlíðarenda endurholgaður.
  3. Vertu með sex punkta belti og kappaksturshjálm. Biddu alla um að halda sér fast og keyrðu af stað. Segðu að þú sért að reyna að komast að hjá McLaren í F1.
  4. Talaðu í sífellu upphátt við sjálfan þig. Þegar að einhver spyr skaltu segja viðkomandi að raddirnar í hausnum á þér geti ekki ákveðið sig hvert þú eigir að keyra.
  5. Áður en þú leggur af stað skaltu kveikja þér í sígarettu undir stýri, setja upp Clint Eastwood lookið, líta á farþeganna og segja: “Do you feel lucky…. Punks?” og gefa svo í.
  6. Biddu alla farþegana vinstra megin um að færa sig hægra megin og alla þá sem að sitja hægra megin um að færa sig vinstra megin. Útskýrðu fyrir þeim að bíllinn haldi ekki jafnvægi öðruvísi.
  7. Líttu flóttalega í kringum þig í hvert sinn sem að þú sérð lögreglubíl. Segðu mjög alvörugefinn við farþegana að ef þeir stoppi og spyrji þá hafir þú verið að keyra síðan klukkan 8.
  8. Farðu í spyrnu við alla bíla sem að þú sérð. Segðu að þú lítir á framúrakstur sem persónulega árás á persónuleika þinn.
  9. Vertu klæddur eins og Osama Bin Laden undir stýri. Þegar að þú leggur af stað skaltu öskra eins hátt og þú getur: “JIHAD” og gefa svo í.
  10. Biddu alla farþega um að leggjast á bæn. Segðu að þú getir ekki haldið áfram nema að þeir veiti þér andlegan stuðning.

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8